![]() |
||||||||||||||||
|
Gúlp! gestabækurnarMikilvægur þáttur í galleríi Gúlp! voru gestabækurnar sem fylgdu galleríinu frá upphafi. Bækurnar voru upphaflega kennslubækur í tölvu- og líffræði en fyrir tilstilli Gúlps! öðluðust þær nýtt hlutverk í lífinu. Yfir upprunalegar síður bókanna sköpuðu listamenn Gúlpsins! ódauðleg listaverk til minningar um sýningu sína í galleríinu þar sem gestum sýningarinnar er einnig boðið að skrá nafn sitt og athugasemdir eins og gengur. Fyrir vikið urðu gestabækurnar að listaverkum fyrir utan það að vera mikilvægur menningarritari þar sem merk saga elsta starfandi ferðagallerís Íslands var skráð. En að fylgja ferðagalleríi, sem skaust heimshorna á milli í hverri viku, eftir var hægara sagt en gert. Þess vegna útbjuggu Gúlp! listamenn í fjarlægum löndum síður fyrir gestabókina sem þeir sendu til höfuðstöðva Gúlpsins! ásamt upplýsingum um sýningu sína. Þessum gögnum var svo haldið saman af gallerírekendunum sem límdu myndir og blöð frá sýningunum inn í gestabókina. Gestabækurnar tvær voru svo til sýnis á árlegu Documenta hátíðunum ásamt öðrum fylgihlutum gallerísins. Gúlp! póstur gulpgallery@hotmail.com |
|||||||||||||||